Velkomin(n) á fjarmælivefinn
Fjarmælivefurinn er ætlaður fyrirtækjum sem nota rafmagn og/eða heitt vatn í
miklum mæli og eru fjarmæld. Þá er mælingum fyrir minnst hvern klukkutíma
safnað að næturlagi og gögnin gerð aðgengileg í máli og myndum.
Markmiðið með vefnum er að notendur geti nálgast þær upplýsingar sem þeir þurfa
á að halda með sem einföldustum hætti. Þannig fái notandi vefsins strax
og hann skráir sig inn, helstu upplýsingar um það sem hann þarf á að
halda. Með einum músarsmelli til viðbótar fái hann síðan ýtarlegustu
upplýsingar sem hann þarf.
Er mitt fyrirtæki á fjarmælivefnum?
Hér fyrir neðan getur þú slegið inn kennitölu fyrirtækisins þíns og athugað
hvort einhverjar mælingar hjá því eru á fjarmælivefnum.
Kennitala:
Nýjustu breytingar
Vefurinn er í sífelldri endurskoðun og þar gegna ábendingar viðskiptavina miklu
máli. Í nóvember 2004 var vefurinn uppfærður og þá komu m.a. inn eftirfarandi
viðbætur:
-
Notendur sem týnt hafa aðgangsorðum sínum geta fengið þau send
með sjálfvirkum hætti.
-
Nú hægt að sækja gögn með mismunandi gagnaupplausn.
-
Hægt er að athuga hvort fyrirtæki er í fjarmælingu.
-
Ábyrgðarmenn fjarmælinga geta nú bætt við undirnotendum sem skoðað geta
valdar mælingar.
Prófunaraðgangur
Fyrir áhugasama er hægt að skoða vefinn með því að smella á takkann hér að neðan
en þar geta gestir skoðað lifandi dæmi um þá þjónustu sem hér er veitt.